comedy

Heilsubælið 1 og 2

Heilsubælið eða Heilsubælið í Gervahverfi er íslensk þáttasería í leikstjórn Gísla Rúnars Jónssonar sem var skrifuð af Eddu BjörgvinsdótturLadda og Gísla Rúnari. Þættirnir voru framleiddir af Gríniðjunni og Íslenska sjónvarpsfélaginu fyrir Stöð 2. Sýningar á þeim hófust 1987 og voru átta þættir gerðir í tveimur þáttaröðum.

Þættirnir fjalla um líf starfsfólks Heilsubælisins og baráttu þeirra við sjúklingana. Gert er grín að sjúkrahúslífinu eins og mögulegt er og koma þar ýmsir við sögu, þ.á m. Dr. Saxi læknir, Dr. Sigríður, Malberg Snædal (sem les skilaboð af hurðum Haraldar Kristjánssonar læknis og Kristjáns Péturssonar læknis), Hallgrímur matsveinn, Dr. Adolf yfirlæknir, Sigríður gamla, Steini, Olli og ýmsir fleiri.

Fyrri þáttaröðin var gefin út á mynddisk árið 2009 en árið 2010 sagði Edda Björgvinsdóttir frá því í samtali við Pressuna að hópurinn hafi verið undir mjög miklum áhrifum þeirra bestu í skemmtanaheiminum. Hún tiltók sérstaklega Rowan Atkinson og samleikara hans úr Not the Nine O’Clock News sem voru sýndir á BBC2 á árunum 1979–1982. Í sama viðtali tók hún fram að þau hefðu fengið um 10 atriði að af 280 að láni en að þau hefðu aldrei farið leynt með það.